halló gott fólk,
mikið er nú lang síðan að ég bloggaði til að færa ykkur nýjustu fréttir hér í Helsingör...við fórum s.s. til Koben til Ingibjargar og Gumma, og skemmtum okkur rosalega vel, þau eiga auðvita fullt af vinum en í þetta skifti foru hjá þeim 2 mjög skemmtilegar stelpur sem heita Addy (sem mér skilst er að læra læknin hér) og Valdís (sem er frænkan hennar Tönju.)
Við ætluðum öll á Hot Chip tónleika sem okkur var öllum búið að hlakka mikið til að gera, fórum heim til ingibjargar, og drukkum þar og tórum svo a stóra Vega í miklum feeling, fórum og keyptum okkur drykk og heyrðum að þeir voru ekki byrjaðir, sem okkur fannst smá skrítið því tónleikarnir, eða upphitunar bandið átti að byrja klukkan 19 og við koum ekki fyrir 21:30 (því það var fáranlega gaman heima hjá þeim, og spurðum konuna á barnum hvenær þeir ættu að byrja þá sagði hún okkur að einn væri veikur í bandinu og Hot Chip hefði þessvegna verið aflýst!!! BÖMMER óttans, þannig að allir duttu smá úr stuði og fórum við yfir á lille Vega, svo á Ideal Bar, og svo bara heim...Ömulegt, en okkur tóskt samt að skemmta okkur ágættlega meða við að ég eyddi 5000 kr í tónleika sem voru svo aflýstir.
Á laugardaginn fórum við aftur til Helsingör, og fórum í 18 ára afmælis party (I kid you not my friends) sem maður á eflaust ekki mörg eftir vegna aldurs mans sjálfum og vinum, enda allt gamalt fólk eftir! En það var soldið skemmtilegt, dró mann aðeins til baka í gamla dagana!

Það var farið í "Ég hef aldrei" og það voru soldið skemmtilegar spurningar sem komu upp, til dæmis spurði Fillipino gaurinn
"Ég hef aldrei sofið með refugee/innflytjanda"...hahaha

og "Ég hef aldrei óskað að ég væri hvítur"
soldið oðruvísi spurningar en bara skemmtilegt, i guess.
Þetta party endaði þegar brunakerfið í skólanum fór í gang, og þá fluttist fjörið til okkar Patriks, en fyrst þurftum við að stinga af 3 ótrulega pirrandi Indverja, Nepal-búa og gæja frá Uzbakistan, sem eru bæði alltaf að reyna við alla, tala eins og verstu ruslakallar, og kunna ekki að drekka á þess að stlást og brjóta allt.
Heima hjá okkur voru tekinn nokkur staup (TAKK MAMMA FYRIR TÓPASINN ALVEG AÐ GERA GÓÐA HLUTI

) og svo var ferðini heitið í bæinn, Patrik fór fyrst á eina skemmtistaðinn í bænum sem heitir RETRO og er...soldið eins og Sólon...hann fór með Payam frá Iran, og Mike frá USA (sem er mesta nörd í heimi, og talaði ekki um annað en að fá sér píu, hann gengur um berfætur í leður töflum og svona amerískum khakis, og sömu peysuni alla daga...meiri segja á djamminu...) Við komum inn á staðinn og ég og Patrik fórum bara beint heim bæði því að klukkan var orðinn soldið margt og ég var líka svo þreytt og búin á því. Djöfull elskar Patrik Kebab stemminguna í Denmark, hann borðar svona eftir hvert djamm....nasty sweaty meat! bleeehhhh
Eina sem ég hata við að djamma með svona ungu fólki, er að það er svo mikið talað um það daginn eftir, "mannstu þegar þú sagðir "hvar er leigubílinn?!!" og þú varst aldrei búin að hringja í hann?!?!! hahaha" Þeim finnst ég bara vera GEÐVEIKT KLIKKUÐ fyrir þetta og líka því ég bauð leigubílstjóranum með á djammið....ég meina er það ekki bara almenn kurteisi? HALLÓ!

djók...
Þessa vikuna er ég buin að vera með dass í maganum, og eitthvað sem er ekki gaman, og Patrik elsku stráknum líður ekkert voða vel í dag....En við vorum með Liz sem var einmitt að verða ÁTJÁN í síðustu viku í heimsókn í gær og það var opnuð rauðvín og screwdrivers, captin morgan og nokkrir bjórar yfir grillinu okkar og sænska idol....svaka fjór, maður vaknði soldið dassaður í morgun

hehe Í kvöld er eitthvað lið að koma til að horfa á video og poppa og svona kozy heit...
Plönnin fyrir helgina eru bara að reyna vera hér yfir helgina, spara penning, því eins og þið flest vitið komumst við ekki heim fyrir Jól, þannig að við sjáumst bara hress og kátt þar...og við ætlum samt að reyna komst til Sunnu yfir afmælishelgina mína....

Þvó það kostar 7000 kr að fljua til london og til baka... en ekki 25 á mann eins og það kostar til Íslands...

Ananrs er líka European cultural evening á laugardaginn, mega djamm þá

í litla sveit skólanum okkar...
Sáu þið HIV fréttina á MBL, passið ykkur á þessu, þetta er ekkert djók lengur, litla saklausa safe-haven Ísland er bara með sér sveitina niðrí bæ um helgar, og með bullandi dópista með AIDS...Svo var 18 ára stelpa skotinn til bana hæer rétt já okkur þvi hún gerði kærastan sinn eitthvað pirraðan, þannig að hann bara drap hana....maður er bara hálf smeikur við að tala við fólk sem maður þekkir ekki bara inn og út og aftur til baka...jesus...
EN happy toughts and be careful! Miss you guys

ER EKKI ALLT GOTT AÐ FRÉTTA???
Love Emilía og Patirk :*